17. október 2025

Ályktun um kjarabrot

11. þing ASÍ-UNG fordæmir öll kjarabrot og misneytingu á íslenskum vinnumarkaði sem virðast alltof algeng.

Reglulega berast fréttir af alvarlegum kjarabrotum, launaþjófnaði og misneytingarmálum á íslenskum vinnumarkaði. Það er óásættanlegt að auðugt land eins og Ísland sem vill skilgreina sig sem velferðarríki láti slíkt viðgangast án þess að fast sé stigið niður fæti. Brotin beinast oftar en ekki að ungu fólki og útlendingum. Allir á íslenskum vinnumarkaði eiga að njóta þeirra kjara og réttinda sem barátta verkalýðshreyfingarinnar hefur skilað í gegnum tíðina. Þing ASÍ-UNG kallar eftir aðgerðum og ábyrgð allra hlutaðeigandi og krefst þess að tafarlaust verði gripið til eftirfarandi aðgerða:

Menntun og fagmennska
• Aukin lögverndun starfsheita.
• Styrkja skólakerfið fyrir iðngreinar.
• Raunfærnimat endurmeta og styrkja.

Eftirlit og ábyrgð
• Meiri viðurlög við brotum.
• Styrkja starf stéttarfélaga með viðurlögum.
• Auknar heimildir til að fara inn á staði.
• Aukið eftirlit og samstarf við eftirlitsstofanir.
• Aukið eftirlit með starfsmannaleigum og útsendum starfsmönnum.
• Krafa um regluverk vegna undirverktaka.
• Útvíkka og styrkja keðjuábyrgð.

Stéttarfélög og trúnaðarmenn
• Upphefja starf trúnaðarmanna sem mikilvægasta hlekk stéttarfélaga og atvinnulífs.
• Taka fræðslu trúnaðarmanna til gagngera endurskoðunar.

Fræðsla og samskipti
• Senda ákvæði á stéttarfélög að vera sýnilegri og vera með fræðslu.
• Fræðsla á jafningja grundvelli.
• Stéttarfélög þurfa að beita nýjum leiðum í samskiptum við félagsmenn á jákvæðum nótum (eitthvað skemmtilegt).

Reykjavík, 17. október 2025