Hlaðvarp

Kaffitíminn með ASÍ-UNG

Kaffitíminn með ASÍ-UNG er vettvangur fyrir fólk til þess að fræðast um málefni vinnumarkaðarins.
Hér ætlum við að ræða réttindi, skyldur, stéttarfélög, samfélagsmál og allt sem snertir ungt fólk á vinnumarkaði í dag. Við ætlum að gefa innsýn bak við tjöldin í verkalýðshreyfingunni, ræða mál líðandi stunda, fá til okkar góða gesti og reyna að setja flókin mál vinnuréttarins upp á léttari nótur.
Við stefnum að því að vera létt, skemmtileg og fræðandi.

Nýjasti þáttur

Afhverju er svona dýrt að vera ungur?

EP 7 · 3. nóv 2026 · 27 mín

Launin hækka, en afhverju finnst okkur við samt ekkert eiga meira eftir um mánaðarmót? Í þessum þætti af Kaffitímanum með ASÍ-UNG fáum við Róbert Farestveit, hagfræðing á skrifstofu ASÍ, í spjall til að ræða fjárhagslega stöðu ungs fólks og reyna að gera efnahagsumræðuna aðeins skiljanlegri.…

Hlusta á Spotify

Eldri þættir