17. október 2025

Ályktun um samgöngumál

11. þing ASÍ-UNG leggur áherslu á að forgangsröðun samgöngumannvirkja byggist á raunverulegri þörf samfélagsins. Uppbygging almenningssamgangna í þéttbýli þarf að fylgja eftir svo fólk hafi raunhæfan kost á að draga úr notkun einkabíls, í stað þess að þröngvað sé til þess með gjaldtöku og skertu aðgengi. Skoða ætti samgöngustyrki til að styðja við vistvæna ferðamáta.

ASÍ-UNG hafnar því að kílómetragjald verði lagt á með þeim hætti sem nú er lagt upp með, þar sem það bitnar mest á tekjulægstu hópum og íbúum landsbyggðarinnar. Þörf er á sanngjarnara og gagnsærra kerfi. Kílómetragjaldið má ekki verða nýr landsbyggðarskattur.

Einnig þarf að skoða aukna gjaldtöku af ferðamennsku, meðal annars skemmtiferðaskipum, og tryggja að innviðir hafna og raforku séu til staðar til að nýta þann tekjustofn.

ASÍ-UNG áréttar að aðgengi að heilbrigðisþjónustu og annarri grunnþjónustu verði tryggt óháð búsetu.

Reykjavík, 17. október 2025