10. nóvember 2026

12. þing ASÍ-UNG

12. þingi ASÍ-UNG lauk 6. nóvember. Yfirskrift þingsins að þessu sinni var „Hvað situr eftir?

Kjör, skattar og framtíðartækifæri ungs fólks“. Georg Páll Skúlason, nýkjörinn forseti ASÍ, ávarpaði þingið við setningu þess og minnti á mikilvægi ungliðastarfs í hreyfingunni. Á þinginu voru erindi frá Henný Hinz aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ, sem fjallaði um stöðu ungs fólks í samfélaginu og Steinunni Bragadóttur, hagfræðingi hjá ASÍ, sem fjallaði um tækifæri ungs fólks á vinnumarkaði.

Í kjölfar erindanna mynduðust góðar umræður um félagslegan hreyfanleika ungs fólks. Ályktun þingsins, sem þegar hefur verið birt, dregur saman niðurstöður umræðnanna.

Stjórn ASÍ-UNG lagði fram tillögur að samþykktarbreytingum sem sneru að því að þing ASÍ-UNG yrði framvegis haldið annað hvert ár að vori. Markmiðið með þessum breytingum er að stjórnin geti tekið virkari þátt í starfi innan ASÍ. Tillögurnar voru samþykktar einróma og er því næsta þing áætlað vorið 2028.

Alls voru tíu nýir kjörnir inn í stjórn, sjö aðalmenn og þrír varamenn. Þrír stjórnarmenn náðu endurkjöri og halda áfram í stjórn ASÍ-UNG. Það eru þau:

Andri Már Ólafsson, FMA

Katrín K. Briem Gísladóttir, FVSA

Valdimar Friðjón Jónsson, Einingu-Iðju

Fjórir nýir aðalmenn voru kjörnir í stjórn, það eru þau:

Arndís Inga Sveinsdóttir, Stéttarfélagi Vesturlands

Jóhann Vest, AFLi

Sóley Sandra Gunnlaugardóttir, FMA

Thelma Björk Sævarsdóttir, FVSA

Þrír nýir varamenn voru kjörnir í stjórn, það eru þau:

Einar Bjarki Stefánsson, Byggiðn

Elfur Gígja Hreggviðsdóttir, AFLi

Karen Ýr Friðjónsdóttir, VR

Tveir stjórnarmenn sitja áfram í stjórn sem voru ekki í kjöri að þessu sinni. Það eru þær:

Elín Ósk Sigurðardóttir, Stéttarfèlagi Vesturlands

Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, Einingu-Iðju

Á þinginu kvaddi Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir ASÍ-UNG eftir fjögurra ára stjórnarsetu og eins og hálfs árs formennsku.

Svanfríður sinnti mjög góðu starfi innan ASÍ-UNG og átti mikilvægan þátt í að móta og efla starf þess. Ný stjórn kveður hana með þökkum og óskar henni góðs gengis í komandi verkefnum.

Við kveðjum líka Andreu Rut Pálsdóttur, Ásdísi Helgu Jóhannsdóttur, Guðmundu Steinu Jósefsdóttur og Þorvarð Bergmann Kjartansson. Við þökkum þeim innilega fyrir góð störf í þágu ASÍ-UNG og óskum þeim góðs gengis í komandi verkefnum.

Fyrsti fundur stjórnar fór fram í kjölfar þingsins eins og venja er. Þar var Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir kjörin nýr formaður ASÍ-UNG, Andri Már Ólafsson var kjörinn varaformaður og Thelma Björk Sævarsdóttir var kjörin ritari. Kynningar á stjórnarmeðlimum munu birtast á samfélagsmiðlum á komandi dögum.