Fræðsla

Námskeið og fræðsla

ASÍ-UNG býður upp á samstarf við stéttarfélög og aðra hópa til þess að fræða ungt fólk á vinnumarkaðinum

Fræðsla og þekking eru lykilþættir í því að efla stöðu ungs fólks á vinnumarkaði. ASÍ-UNG stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum sem hjálpa ungu launafólki að kynnast réttindum sínum, hlutverki stéttarfélaga og því hvernig það getur haft áhrif á eigin starfskjör og samfélagið í heild.

Meðal viðfangsefna geta verið réttindi og skyldur á vinnumarkaði, kjarasamningar, samningatækni, hlutverk trúnaðarmanna, jafnréttismál, geðheilsa á vinnustað, leiðtogahæfni og þátttaka í verkalýðshreyfingunni. Einnig býður ASÍ-UNG upp á fræðslu sem styrkir ungt fólk til virkrar þátttöku í félags- og hagsmunabaráttu.

Markmiðið er að veita ungu fólki verkfæri, þekkingu og sjálfstraust til að taka upplýstar ákvarðanir, standa vörð um réttindi sín og verða öflugir þátttakendur í mótun framtíðar vinnumarkaðarins.

Hægt er að hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir því að fá okkur til þess að vera með fræðslu eða til þess að fá aðstoð til þess að byggja upp fræðslu.