17. október 2025

Ályktun um málefna barnafjölskyldna

11. þing ASÍ-UNG lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun leikskólamála og þeim samfélagslegu áhrifum sem svokallað „Kópavogsmódel“ hefur afhjúpað. Þegar samfélagið allt talar um mikilvægi fjölskyldulífs og jafnréttis á vinnumarkaði er stingandi að horfa á ákvarðanir teknar sem í raun grafa undan stöðu foreldra, og þá sérstaklega kvenna.

Álagið á foreldra fer vaxandi. Leikskóladagurinn styttist, samhliða því að vinnudagurinn helst óbreyttur. Niðurstaðan er sú að einkalíf og vinna skarast með auknu álagi, samviskubiti og verri lífsgæðum fyrir foreldra og börn. Kerfið leggur meiri byrðar á konur, sem eru líklegri til að taka á sig tekjumissi eða færa sig í hlutastarf til að halda fjölskyldulífinu gangandi. Feður missa jafnframt af tíma með börnum sínum vegna þess að launamunur og kerfislegar hindranir gera þeim ókleyft að draga úr vinnu. Þetta er öfug þróun í jafnréttismálum.

Þetta fyrirkomulag bitnar harðast á lægra launuðu fólki og foreldrum í vaktavinnu, þeim sem ekki hafa sveigjanleika í starfi eða félagslegt bakland til að brúa bilið. Fyrir þessa hópa getur leikskólamódel sem takmarkar vistunartíma jafnvel leitt til félagslegrar einangrunar, minni atvinnuþátttöku og enn verri fjárhagsstöðu en áður.

Á sama tíma og samfélagið stendur frammi fyrir lækkandi fæðingartíðni, er verið að gera það dýrara og erfiðara að eignast og ala upp börn. Kröfur til foreldra eru miklar, bæði í vinnu og einkalífi, á meðan að stuðningur hins opinbera við foreldra er í mýflugumynd. Tekjuskerðing í fæðingarorlofi, há gjöld, kröfur til og vegna tómstundaiðkunar barna og ósveigjanleiki í leikskólakerfinu gera að verkum að foreldrar, einkum mæður, fresta barneignum eða ákveða að eignast færri börn. Ný skýrsla Vörðu um stöðu launafólks á Íslandi dregur fram sláandi niðurstöður um hve margir foreldrar upplifa fjárskort sem kemur í veg fyrir að þeir geti staðið straum af grunnþörfum barna sinna. Það undirstrikar að áhyggjurnar eru bæði raunverulegar og brýnar. Ef vilji er til að snúa þessari þróun við, verður að horfa á málið heildstætt.
ASÍ-UNG leggur áherslu á eftirfarandi:
• Vinnutímastyttingu á almennum markaði til að jafna leikinn við opinbera geirann og skapa raunhæft svigrúm fyrir foreldra.
• Aukin sveigjanleik í leikskólakerfinu, þannig að foreldrar geti raðað leikskólatíma í samræmi við raunverulegan vinnutíma og fjölskylduaðstæður.
• Jöfnun á leikskólagjöldum sem miðar að því að hærri gjöld bitni ekki á efnaminni foreldrum eða þeim sem eru rétt yfir lágmarkslaunum.
• Endurskoðun á fjárhagslegum stuðningi við foreldra sem kjósa að vera lengur heima með börnum sínum, með greiðslum sem endurspegla raunverulegan kostnað við leikskólapláss og tryggja áframhaldandi lífeyrisréttindi heimavinnandi foreldra.
• Breytingar á fæðingarorlofi sem miða að lenging fæðingarorlofs og að foreldrar fái að stjórna deilingu orlofs sín á milli, að tekjur í fæðingarorlofi séu ekki skertar, og að foreldrar fái að eyða fyrstu þrem mánuðum með barni saman í orlofi.
• Að betri starfskjör séu ekki keypt með skerðingu á öðrum kjörum. Kaffitímar og matartímar eru mikilvægur partur af vinnudeginum. Það er mikilvægt fyrir bættari starfskjör og meiri starfsánægju að starfsfólk fái tíma og tækifæri til þess að mynda tengsl og taka hlé frá starfinu sínu. Þau réttindi eru ekki bætt upp með styttri vinnuviku eða hærri launum.
• Styðja þarf við foreldra í námi með sveigjanleika og fjárhagslegum úrræðum, svo barneignir verði raunhæfur kostur fyrir ungt fólk.

Þing ASÍ-UNG telur að þær áherslur sem taldar hafa verið upp spili stórann þátt í lækkandi fæðingatíðni samfélagsins og setur fram kröfun um samfélag þar sem báðir foreldrar fá raunveruleg tækifæri til að verja tíma með börnum sínum — án þess að það leiði til óþarfa tekjutaps, aukins álags eða ójafnréttis.

Kópavogsmódelið og aðrar sambærilegarkerfisbreytingar eru ekki lausn heldur eru þau eru einkenni á stærra vandamáli: vinnumarkaði sem hefur ekki aðlagast raunverulegum þörfum nútíma foreldra.

Tími er kominn til að hanna kerfið út frá nútímasamfélagi, þar sem fjölskyldulíf, jöfnuður og mannsæmandi vinnutími eru raunveruleg markmið, ekki aðeins orðin tóm.

Reykjavík, 17. október 2025