11. þing ASÍ-UNG lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu húsnæðismála ungs fólks hér á landi.
Andvaraleysi stjórnvalda hér á landi undanfarna áratugi og blind markaðshyggja hafa leitt til alvarlegrar húsnæðiskreppu sem bitnar harðast á ungu fólki. Nú er svo komið að nær ómögulegt er fyrir ungt fólk að eignast sitt eigið húsnæði og festist það því á óöruggum leigumarkaði sem einkennist af háu leiguverði og öryggisleysi. Að hafa þak yfir höfuðið eru mannréttindi.
Þing ASÍ-UNG ályktar að nú sé nóg komið og krefst þess að stjórnvöld grípi þá þegar til eftirfarandi neyðaraðgerða:
Leigumarkaðurinn
• Húsnæðisliðurinn verði fjarlægður úr vísitölu neysluverð.
• Setja skýran lagaramma um leigumarkaðinn. Fara fram á greiningu á kostum og göllum leiguþaks. Setja svo lagarammann út frá niðurstöðu þeirra greiningar. Tryggja meiri fyrirsjáanleika í leiguverði.
• Greiðslumat er gagnrýnisvert. Endurskoða þarf útreikningana og hafa meiri sveigjanleika. Sem dæmi skal taka mið af sögu af leigumarkaði inn í greiðslumatið.
Aðgengi að fasteignarmarkaði/hentugu húsnæði
• Byggja skal ódýrara húsnæði og bjóða upp á fjölbreyttari húsakost. Til dæmi byggja fleiri einstaklingsíbúðir og íbúðir fyrir fyrstu kaupendur.
• Gefa skal kost á fjölbreyttari leiðum til að komast inn á húsnæðismarkaðinn, sem leiðir síðan að eignamyndun.
Húsnæðisstuðningur
• Tryggja skal að ráðstöfun séreignarsparnaðar til útborgunar á fyrstu eign eða innborgun á höfuðstól sé tryggt til frambúðar.
Reykjavík, 17. október 2025