ASÍ-UNG

Algengar spurningar

Hér eru helstu spurningarnar sem við fáum til okkar, ef þú ert með frekari spurningar má alltaf hafa samband við okku á Facebook, Instagram eða með tölvupósti á asiung@asi.is

Hverjir geta orðið meðlimir í ASÍ-UNG?

Allir félagsmenn aðildafélaga ASÍ á aldrinum 18-35 ára eru nú þegar meðlimir að ASÍ-UNG.
Hægt er að skrá sig á fræðslu- og tengsladaga og þingin okkar í gegnum sitt stéttarfélag.
Opna viðburði mega allir sem vilja mæta á.

Ef þú hefur áhuga á því að sitja í stjórn ASÍ-UNG þá er hægt að gefa kost á sér á þingunum okkar.

Hvað kostar félagsgjald?

Það er ekkert sérstakt félagsgjald að ASÍ-UNG, þú borgar bara félagsgjald til þíns stéttarfélags.

Hvernig get ég tekið þátt í starfi ASÍ-UNG?

Við mælum með því að fylgjast vel með auglýstum viðburðum, mæta á opna viðburði og biðja svo þitt stéttarfélag um að skrá þig á fræðslu- og tengsladaga og þingin til þess að hafa meiri áhrif á starfið.

Hvaða réttindi hef ég sem meðlimur?

Þú hefur rétt á því að mæta á viðburði, taka þátt í starfinu og hjálpa við það að móta ungliðastarf innan ASÍ.

Hvernig hef ég samband við ASÍ-UNG?

Það er hægt að hafa samband við okkur á Facebook eða Instagram, eða með því að senda tölvupóst á asiung@asi.is.

Hvernig virkar kjarasamningur?

Kjarasamningur er samningur á milli stéttarfélags og atvinnurekeda um laun, kjör og skyldur starfsmanna. Kjarasamningar eru grunnurinn að réttindum launafólks á Íslandi. Þeir tryggja lágmarksréttindi fyrir alla starfsmenn á vinnumarkaði og skapa sameiginlegar reglur um laun og starfskjör.

Get ég farið á námskeið í gegnum ASÍ-UNG?

ASÍ-UNG hefur almennt ekki verið að bjóða upp á námskeið, en við erum alltaf opin fyrir því að bæta við okkur og bjóða upp á frekari tækifæri fyrir félagsfólk.

Ef þú hefur áhuga á því að mæta á námskeið á vegum ASÍ-UNG þá má endilega hafa samband við okkur á Facebook eða Instagram.

Fannstu ekki svarið?

Hafðu samband við okkur og við svörum sem fyrst.

Hafa samband